Guðmundur Ingólfsson rafvirki

Hugleiðingar

20.01.2010 18:38:19 / gumming

Það vildi ég að ekki væri satt

Það er að verða ljósara með hverjum degi sem líður,  að heppilegra hefði verið fyrir Íslenska þjóð,  að forsetinn hefði skrifað undir Icesave.  Allt tal um að málstað Íslendinga sé sýndur meiri skilningur,  hefur reynst sinnaskipt meðal fárra aðila sem sem skipta ekki máli,  fyrir framgang málsins,  þó óneitanlega sé gott að finna einhverstaðar stuðning

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2010 13:03:04 / gumming

Vinstri Grænir

Það er sorglegt að horfa upp á Flokkstjórnarfund VG á Akureyri,  stjórnmál krefjast alltaf samvinnu og fólk getur ekki krafist þess að öll þeirra sjónarmið verði ofan á og því stærri sem flokkarnir eru,  þarf meiri málamiðlun,  þeir sem kjósa að standa fast á öllum sínum sjónarmiðum,   verða því að sætta sig við að vinna í smærri flokkum oftast áhrifslausir um alla framvindu málaÍhaldið er alltaf sér á parti þeir sameinast alltaf á endanum um peninga

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 16:15:28 / gumming

Nú skulum við öll anda með nefinu

Það getur verið komin upp ný stað í Icesave málinu.  Við meigum ekki láta flokkadrætti skemma fyrir okkur.  Nú verða allir foringjar allra stjórnmála flokka,  að gæta orða sinna, og skoða málið.  Við höfum engan tíma fyrir einhvern ídealisma

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 02:38:04 / gumming

við skulum athuga málið

Ef eitt hvað er til í þessu sem Eva Sjoly er að segja,  þá er það þess vert að skoða málið og nota tímann fram a kosningum til þess.  Við erum bara búin að heyra svo mörg gylliboð um auðveldar lausnir að maður er vantrúaður,  en það er þess virði að skoða það.  En eitt vakti líka athygli mína var að í Ameriku eru bankarnir farnir að borga launauppbætur fyrir 2008 eftir lélegasta ár í manna minnum,  líklega fyrir góðan árangur.  Ný frjálshyggju faraldurinn heldur áfram,  eitt hvað til að hugsa um.  Eru ekki Sjálfstæðismenn að segja okkur að þeir hafi ekki brugðist heldur Evrópska kerfi.  Þýðir það ekki að þeir munu halda áfram á sömu braut ef þeir komast að. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2010 19:12:39 / gumming

Útrásarvíkingurinn Bjarni Benediktsson

Hefur nú lagt línurnar um komandi kosningarbaráttu.  Þar á að láta sverfa til stáls,  þeim kemur ekki við afleiðingarnar,  og ásaka ríkistjórnina fyrir að leka út upplýsingum,  um hvað getur gerst ef samningunum verði hafnað þó ekki sé um að ræða annað en sannleika. 

Þeir virðast ekki vera búnir að átta sig á að þeir dagar, þegar formaður þeirra gat haldið drottningarræður varður fyrir afskiptum þeirra sem ekki höfðu sömu skoðun eru liðnir,  og þó góðir Íhaldsmenn hafi keypt heilt dagblað til að þeir geti hvítþvegið sína menn,  þá sætta þeir sig ekki við að hlutlaus skírsla sem segir hvað getur gerst ef við höfnum Icesave samningum komi fram.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2010 06:57:37 / gumming

Áhrifin að koma í ljós

Þá vitum við það.  Danir ætla ekki að lána okkur nema við stöndum við skuldbindingar okkar,  Svíjar ætla að ákveða sig eftir fund í AGS sem verður ekki á dagskrá fyr en fjármögnun endurreisnarinnar er tryggð, Finnar ætla að endurskoða lánveitinguna en vilja fá tryggingu fyrir að við stöndum við skuldbindingar okkar,  sem þýðir að við verðum að klára Icesave.  Aðeins Norðmenn hafa verið jákvæðir.  Eitt er víst að við þurfum peninga til að endurreisa efnahagslífið á Íslandi.  hvað svo sem lýður sanngirni eða ósanngirni  þess að við borgum Icesave skuldina. 

Þeir sem hafna lögunum verða að gera sér grein fyrir að þetta eru blákaldar staðreindir,  og við eigum engan kost annan en draga saman velferðarkerfið. Lækka laun og hækka skatta enn meir en nú er orðið,  ef við höfnum Icesave lögunum.  Það vildi ég að ekki væri satt,  en því miður blasir kaldur sannleikurinn við okkur.

Fjármögnun á orkuverum til stóriðnaðar verða í uppnámi, nema við viljum láta útlendinga reisa þau og eiga,  og afhenda þeim þar með allavegana hluta af auðlyndum okkar

Allt það sem á að koma hjólum atvinnulífsins á stað verður einfaldlega frosið.  Ég held að flestir geti reiknað út hvað þetta þýðir fyrir Íslenska þjóð

Þeir sem berjast á móti lögunum um Icesave,  skulda jóðinni að þeir upplýsi hana um hvar þeir ætla að fá fjármagn sem við þurfum á að halda á næstunni,  eða nær þeirra hugsun ekki lengra en það að fella lögin,  er það ekki þeirra mál hvað tekur við.

Ég satt að segja sé ekki hvers vegna forsetinn segir að ekkert af því sem varað var við,  hafi komið fram,  hvað er það sem vakir fyrir honum?  Mér er spurn. Ef það er að fá þjóðina til að stoppa og hugsa sinn gang,  er þetta þá ekki alltof mikill háskaleikur,  sem getur orðið okkur dýrkeyptur


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 19:27:16 / gumming

Íslendingar sameinist

Það er krafa Íslendinga að allir þingmenn sameinist að baki ríkisstjórninni, við að leysa Icesavemálið,  svo friður fáist til að halda áfram uppbyggingu efnahagaskefisins

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2010 14:59:50 / gumming

Skrifum undir á Facebook að Forsetinn segi af sér

Hvað margir sem skrifuðu undir áskorun til Forseta trúðu því,  að skrifa ekki undir lögin um Icesave,  að þar með værum við að losna við að borg,  en nú eru allir þingmenn sammála um að við verðum að borg( líka Hreyfingin)   aðeins er verið að kjósa um atriði sem skipta ekki höfuð máli.  Í raun er verið að hætta afkomu þjóðarinnar til
langframa,  fyrir flokks hagsmuni Sjálfstæðisflokksins, Og Forsetinn hefur skipað sér í sveit með þeim.  Og á því að sjálfsögðu að víkja. 

Nú er til hópur á Facebook sem vinnur að því að skora á Forsetann að segja af sér.  Nú ríður á að fólkið sem ekki er að trana sér fram dags daglega láti til sín heyr og skrifi á þennan lista.  Við viljum ekki láta nota mikilvæga hagsmuni almsnnings til að þjóna flokks hagsmunum Íhaldsins eða auðmanna samtaka eins og Indefance

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2010 00:48:05 / gumming

Stjórnarsndstöðu formenn í kastljósi

Það voru hálf lúpulegur hópur sem ekkert vitlegt hafði til málanna að leggja,  eina sem þeir sögðu "það er allt ríkisstjórninni að kenna"  síðan mætti Sigríður Andersen sem bergmálaði það sama,  vond ríkisstjórn og ekkert annað,  en nú segja allir að við verðum að borga, eitt hvað sem margir töldu að þeir væru að mótmæla þ.e. að þeir héldu að við þyrftum ekki að borga skuldirnar eg við neituðum,  svolítið skondið.  Eina vonin er að þjóðin  samþykki lögin og við getum hafið endurreisnina


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2010 19:14:31 / gumming

Foestinn í frí til Indlands

Nú heldur forseti vor líklega í frí til Indlands að loknum starfsdegi, ekki veitir honum af hvíldinni

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2010 19:07:52 / gumming

Lækkun lánshæfismats

Erum komin í ruslflokk.  Glæsilegt.  Hvað verður næst.  Öllu skal fórnað til að koma Íhaldinu í stjórn. Popularismi stjórnarandstöðunnar að bera ávöxt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2010 15:59:08 / gumming

Indefence vill nú leggja línurnar

Eiríkur S. Svavarsson einn af talsmönnum Indefence hópsins vill enga kosningar baráttu um Icesave,  bara að fólk samkykki það sem þeir segja,  við hverju býst maðurinn. Auðvita logar allt á Íslandi sem aldrei fyrr,  menn vouru farnir að eygja möguleika á betri tíð,  en nú seinkar öllu og um hvað langan tíma veit enginn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2010 11:26:09 / gumming

Forsetinn ýtir Íslendingum fram af brúninni

Ólafur hlítur að segja af sér ef lögin verða samþykkt. Það er kanski líka ágætt að forseti útrásarvíkinga og auðmanna taki sér eitt hvað annað fyrir hendur,   t.d. hestamensku og helst uppi á Skotlands heiðum ef Skotar vilja þá taka við honum

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2010 21:30:41 / gumming

Hvað gerir forsetinn

Nú bíður þjóðin hvað gerir forsetinn,  skrifar hann undir eða ekki

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2010 19:42:25 / gumming

Gleðilegt nýtt ár

Ég árna öllum gleðilegs og farsæls komandi nýs árs með þökk fyrir það liðna.  Lifið öll heil

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  30  Alls: 18855
Klukkan
Textabox
Textabox
Þetta er tónlistar síðan mín á My Space   www.myspace­.com/gumming­
Textabox

Textar frá gamalli tíð eftir
Guðm Ingólfs











Súsana

Þvi ég vil lifa og leika mér

já lifa á meðan ég ungur er

Því tíminn líður og áður en veit

ég aldur hnigin er orðin og brostin mín
heit

 

Já ég vil elska þá tími er til

og teiga vínin í ástar il

Af vanda málunum verður samt gnótt

þó verði ég aðeins hjá þér þá einustu
nótt

 

Nú vil ég syngja og skemmta mér

og sorgum gleyma í faðmi þér

Súsana vert´u í nótt hjá mér

 

Ó Súsana ó súsana

ég veita vil þér ást og il

að vera með þér í nótt ég vil

 

Við skulum eiga sælu sælustund

og saman ganga á gleði fund

því enginn annar vita má

um okkar unað og þrá.

 

Og þegar árunum fjölga fer

þá finna mun ég í hjarta mér

þá mynningu sem að aldrey mun mást

um okkar lífsglöðu stundu og elheitu
ást.


Samið fyrir Guðm. Ó Þorláksson


 

 

Ég ætla að sofa

 

Ég er fyrir löngu orðin hundleiður
á þér

Alveg máttu fara í rass og rófu
fyrir mér

Ég nenni ekki að hlusta á þessa
þvælu öllu meir

þú bullar eins smjörstrokkur
sem á hann gamli Geir

 

Það er ekki ögn af vit í malinu
í þér

Allt það árans ruglið fer í taugarnar
á mér

Því er best að lát þessu linna
hér og nú

En leita ekki glætu svona upp
á von og trú

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný

 

Ég ætla mér í sálar tetri mínu
að haf frið

En eiða ekki tímanum
í æfilanga bið

Eftir einu gáfulegu atriði
þér frá

Enda ekki nokkur von
já því trúa má

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný

 

 

Í veröldinni er vissulega margt sem
glepur mann

Verst hún fer með sakleysing sem ei
á konur kann

Þannig fór í þetta sinn ég segi
alveg satt

Af þessum miklu mistökum ég borga
má nú skatt

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný




Samið fyrir
Upplyftingu

Æskumyndin

Brosir sólin blítt

blómin vakna á foldum

æskumyndin mín

mér birtist

 

þar sem drengur ég mér undi

út við ána í hólmanum þar

ó hve margs er þar að minnast

já hve mikið er horfið á braut

 

Æskumyndin mín

mér er ætið kærust

ljúft þá tíminn leið

við leik

 

En af áhyggjum nú eigra

og finn mér ei frið

lífsins byrði leggst á mig

 

ó þú æskumyndin kæra

ég ann þér svo heitt

ég vild´i ég væri barn á ný


Samið fyrir
Guðmund Ó
Þorláksson


 

Hann Gústi (Frá ´74)

 

Í hjalla gömlum og gisnum

gamli maðurinn býr

Þó geri þeir gys að honum

hann Gústi er alltaf svo hlýr

 

Snemma að morgni á sjóinn

skektunni Gústi rær

afhvrj´ún er ekki sokkin

enginn samt skilið fær

 

Hann Gústi hann Gústi

Guðsmann kalla þeir hann

Hann Gústi hann Gústi

Þennan siglfirska heiðurs
mann

við lag efttir
Guðm Ingólfs