27.03.2009 17:47:38 / gumming
Íhaldið á greinilega við mikla fortíðarafneitun og einangrunarhyggju að stríða mistökin hjá þeim eru eingöngu þau að þeir létu Framsókn plata sig við einkavæðingu bankanna Sama hvað nýfrjálshyggjan hefur beðið mikið skipbrot í heiminum hversu frjálshyggu klúðrið er algert í henni Ameríku og víðar, þá hefur þeirra stefna sko ekki brugðist heldur voru það vondir viðskiptajöfrar sem voru bara vondir menn og fóru illa með frelsið. Skilja þessi vesalings drengir ekki að það var nú einmitt það að vondir bissnessmenn gátu farið með allt til fjandans, var vandamál vandamálanna og að í hvert sinn sem þeir báðu um meira pláss til að komast þangað þá fengu þeir það orða laust á meðan herlegt lið frjálshyggju stráka stóðu við stýrið ásamt Framsóknar íhaldinu sem alltaf birtist í helmingaskiptastjórnum og fylgdust með af eldmóð, allt fara til helvítis að vísu tóku kratar þátt í loka siglingunni og voru varla búnir að átta sig á því að þeir voru orðnir ábyrgir þegar skútuna tók í botninn
»
26.03.2009 16:42:00 / gumming
Allir kannast við þessa brekku þ.e. þegar gengin er bílvegurinn þeirra Adda og Guðna Sveins á enda dálítið fyrir neðan fossinn. Þar er hvammur en í brekkunni við hvamminn er tilvalið að plant blómum og skrautrunnum allskonar haustlaukum þetta er hægt að gera með því að fólki yrði gefinn kostur á því að fara með blóm úr görðum sínum eða ef einhver tímdi að kaupa harðgerðar plöntur og gróður setja í brekkunni við hvamminn. Ef einhverntíma kemur akfær vegarslóði upp að hvamminum (þarf ekki að ná alla leið) Þá er þetta tilvalinn staður til að grilla og má hlaða grill úr grjóti sem stæði til frambúðar.
»
26.03.2009 15:56:42 / gumming
Nú þegar styttist í það að sprengt verður í geggn milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar er ekki úr vegi að vellta fyrir sér fleiri þröskuldum á veginum um Trölla. Þar er fyrst að nefna tvöföldun Múlaganga og snjóflóðavarnir á Múlavegi Þetta er stór hættulegur vegarkafli og verður eitthvað að gera áður en stór slys verða Kanski er á endanum bara best að bora ný göng milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og einhvern tíman í framtíðinni mun sjálfsagt koma ný göng á milli Siglufjarðar og Fljóta. En þær vegaframkvæmdir sem gætu verið fljótlega á dagskrá er breyting á veginum við Hrun í Fljótum þ.e. að fara niður að sjó utan við Hraun og fara yfir eiðið milli Miklavatns og sjávar, geggnum Haganesvík og yfir Þar sem gamla brúin er á ósnum þetta myndi stytta leiðina verulega og þessi leið er líka mun snjóléttari. Að vísu þarf að byggja hann vel upp á nesinu milli Hraunakróks og Haganesvíkur (Heitir Það ekki Haganes)
»
17.03.2009 17:04:56 / gumming
Þeir eru greinilega að nýta sér aðstæðurnar. Fyritæki sem á í erfiðleikum og fer fram á að umsamdar kauphækkanir komi ekki til framkvæmda til að styrkja reksturinn á að nota alla peninga til styrkingar en ekki greiða arð þetta eru leyfar af gamla hugtsunarhættinum sem hefur tíðkast síðustu 18 árin og íhaldið boðar að ekki verði breyting á ef þeir fá aftur völdin. Þ.e. að hægt sé að vellta öllu yfir á lýðinn og hann skuli borga en ekki taka neytt af alsnægtarborðunum.
»
12.03.2009 14:43:15 / gumming
Þetta var erfitt fyrir Geir Harde að biðja þessa menn afsökunar fyrir hönd Íslenska ríkisins og Íslensku þjóðarinnar en það vafðist hinsvegar ekki fyrir Jóhönnu þetta segir ekki bara mismunin á tveimur persónum heldur kanski hversu mikill regin mismunur er á tveim stærstu stjórnmálaflokkum þjóðarinnar mismunur á afstöðu til fólks eftir hvernig það er sett í þjóðfélaginu. Það mátti ekki biðja þessa menn afsökunar sem beittir voru þvílíku óréttlæti en það þarf að gæta þess vel að gera ekki á hlut þeirra sem hugsanlega voru að stela stór féi frá Íslensku þjóðinni þá á allt að falla með hinu háu herrum og þingmenn íhaldsins kikna í hnjáliðunumnum
»
08.03.2009 13:08:42 / gumming
Breyting á rekstraformi RÚV er eitt af afrekum síðustu ríkistjórnar Íhalds og Framsóknar um leið og sú breyting varð hækkuðu stjórnendur RÚV laun sín ríflega svona í anda hugmynda sem ríkti um laun stjórnenda og annars forréttinda fólks á þeim tíma. Lítið annað hefur breyst í rekstrinum allavega í því sem snýr að almenningi þetta er klárlega eitt af því sem ný vinstristjórn þarf að taka upp og athuga á næsta kjörtímabili
»
07.03.2009 16:14:23 / gumming
Það þarf ekki að tíunda fyrir Siglfirðingum sögu Skógræktar á Siglufirði Hún er öllum vel kunn ekki síst þáttur Jóhanns Þorvaldssonar. Það að allir hafa skoðun á hvernig standa eigi að málum segir einfaldlega að fáum er sama um þennan blett sem setur orðið svo mikin svip á landslagið innan við Stóra Bola. En það er líka að koma upp trjágróður fyrir ofn Íþróttamiðstöðina á Hóli og svo er það elsta skógræktin og í framtíðinni eigum við eftir að eignast skógi prýtt land sunnan við núverandi Skarðdalsskóg þetta er orðið mjög fallegt og á bara eftir að verða fallegra svæði og eftirsóknarvert til útiveru sumar og vetur og skiptir miklu máli að það takist að tengja þetta svæði vel saman t.d. með göngubrautum, reiðgötum o. fl. þannig að allt svæðið og mannvirki á því nýtist allt árið
»
03.03.2009 20:36:03 / gumming
Það hefur mátt lifa á því. Það þurfti að borga vel til að fá hæfa menn sem næðu árangri. Þó það hefði örugglega verið betra að fá Gvend á eyrinni í jobbið hann hefði aldrei getað gert eins mikið af sér eins og þeim tóks og hann hefði gert þetta fyrir miklu minni pening.
»
03.03.2009 01:30:46 / gumming
Þetta er ekki okkur að kenna eða stefnu flokksins segir formaður Sjálfstæðisflokksins og það liggur í loftinu að þeir munu halda áfram þar sem frá var horfið ef þeir komast til valda að loknum kosningum í vor og það sem verra er að eftir seinustu skilaboð Framsóknar til minnihlutarstjórnarinnar þá gætu þeir verið að nálgast Íhaldið enda má búast við að úti í atvinnulífinu séu menn sem þrista á að þessir tveir flokkar taki saman í vor ef þeir fá þingstirk til þess. Það voru nefnilega margir sem fengu ýmislegt á silfurfati á dögum helmingaskiptastjórnarinnar og vilja fá aftur fyrir lítið grunar mig í það minnsta. Það passar líka við að íhald og framsókn hafa dregið lappirnar í þingstörfum vitandi að tíminn væri naumur til að klára nauðsinlegustu málefnin og reyna að koma til móts við fólkið í landinu. Sjálfstæðismönnum finnst það skipta litlu máli aðal atriðið er að geta sagt að ríkisstjórnin geti ekki komið neinu fram vitandi það að þeir ætluða aldrei að gera neitt í ýmsum málum svo sem með Seðlabankastjórnina Fjármálaeftirlitið og það átti að láta tíman líða og bíða eftir að liðið róaðist svo hægt væri að koma í veg fyrir að bankakreppan bitnaði of mikið á þeirra skjólstæðingum, þeim betur settu, og gæta þess þegar bankarnir yrðu einkavæddir á ný að þeir og kvótinn lennti í réttum höndum. Svo er framundan hugsanlegur arður af olíu vinnslu og það þarf að tryggja að það sé ekki verið að spreða honum í venjulegan almenning nema að litluleiti auðvita eiga hinir rétt ættuðu að njóta hans þeir eru jú til þess bornir eða hvað
»
02.03.2009 14:13:37 / gumming
Það segir Vilhjálmur Eigilsson þetta voru bara vondu strákarnir sem misnotuðu okkur. Eithvað svipað var uppi í gömlu Sovét hugsjónin var falleg en það gleymdist bara að taka mannlegt eðli með í reikninginn eða reiknuðu allir stærðfræði snillingarnir þetta allt vitlaust. Það er bara svo að ef mögulegt er að sópa meira til sín en ætlast er til þá er alltaf einhver sem getur það og er til í að gera það.
»
01.03.2009 23:54:20 / gumming
Heimildarmynd sýnd í Sjónvarpinu kanski skilja margir betur svindlið og svínaríið í Íslensku viðskiptalífi undanfarin ár eftir að hafa horft á þessa mynd. Það mætti alveg endursýna hana
»