Guðmundur Ingólfsson rafvirki
Textabox
Þetta er tónlistar síðan mín á My Space   www.myspace­.com/gumming­
Textabox

Textar frá gamalli tíð eftir
Guðm Ingólfs











Súsana

Þvi ég vil lifa og leika mér

já lifa á meðan ég ungur er

Því tíminn líður og áður en veit

ég aldur hnigin er orðin og brostin mín
heit

 

Já ég vil elska þá tími er til

og teiga vínin í ástar il

Af vanda málunum verður samt gnótt

þó verði ég aðeins hjá þér þá einustu
nótt

 

Nú vil ég syngja og skemmta mér

og sorgum gleyma í faðmi þér

Súsana vert´u í nótt hjá mér

 

Ó Súsana ó súsana

ég veita vil þér ást og il

að vera með þér í nótt ég vil

 

Við skulum eiga sælu sælustund

og saman ganga á gleði fund

því enginn annar vita má

um okkar unað og þrá.

 

Og þegar árunum fjölga fer

þá finna mun ég í hjarta mér

þá mynningu sem að aldrey mun mást

um okkar lífsglöðu stundu og elheitu
ást.


Samið fyrir Guðm. Ó Þorláksson


 

 

Ég ætla að sofa

 

Ég er fyrir löngu orðin hundleiður
á þér

Alveg máttu fara í rass og rófu
fyrir mér

Ég nenni ekki að hlusta á þessa
þvælu öllu meir

þú bullar eins smjörstrokkur
sem á hann gamli Geir

 

Það er ekki ögn af vit í malinu
í þér

Allt það árans ruglið fer í taugarnar
á mér

Því er best að lát þessu linna
hér og nú

En leita ekki glætu svona upp
á von og trú

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný

 

Ég ætla mér í sálar tetri mínu
að haf frið

En eiða ekki tímanum
í æfilanga bið

Eftir einu gáfulegu atriði
þér frá

Enda ekki nokkur von
já því trúa má

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný

 

 

Í veröldinni er vissulega margt sem
glepur mann

Verst hún fer með sakleysing sem ei
á konur kann

Þannig fór í þetta sinn ég segi
alveg satt

Af þessum miklu mistökum ég borga
má nú skatt

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný

 

Já ég ætla að sofa

Einn í mínum kofa

Því ég skal þér lofa

Að þú aldrei aldrei skalt
í ból hjá mér á ný




Samið fyrir
Upplyftingu

Æskumyndin

Brosir sólin blítt

blómin vakna á foldum

æskumyndin mín

mér birtist

 

þar sem drengur ég mér undi

út við ána í hólmanum þar

ó hve margs er þar að minnast

já hve mikið er horfið á braut

 

Æskumyndin mín

mér er ætið kærust

ljúft þá tíminn leið

við leik

 

En af áhyggjum nú eigra

og finn mér ei frið

lífsins byrði leggst á mig

 

ó þú æskumyndin kæra

ég ann þér svo heitt

ég vild´i ég væri barn á ný


Samið fyrir
Guðmund Ó
Þorláksson


 

Hann Gústi (Frá ´74)

 

Í hjalla gömlum og gisnum

gamli maðurinn býr

Þó geri þeir gys að honum

hann Gústi er alltaf svo hlýr

 

Snemma að morgni á sjóinn

skektunni Gústi rær

afhvrj´ún er ekki sokkin

enginn samt skilið fær

 

Hann Gústi hann Gústi

Guðsmann kalla þeir hann

Hann Gústi hann Gústi

Þennan siglfirska heiðurs
mann

við lag efttir
Guðm Ingólfs

17.12.2011 16:48:00 / gumming

Næstu kjörtímabil ráða miklu um hvort olíuarðurinn verður þjóðnýttur eða einkavæddur

Eitt að því sem gerir næstu 1 til 3 kjörtímabil svo mikilvæg, er að þá ráðast framtíðar skipann mála í olíumálum, ef við finnum olíu, hvort við fáum Íhald og Framsókn í stjórn og farinn verður Danska leiðin og olíuarðurinn einkavæddur og látinn renna í vasa fárra eða ef við höfum annað stjórnar minstur sem fer Norskuleiðina og arðurinn verði látinn renna í sjóði almenninngs að mestu. Reynslan frá kvótakerfinu sýnir okkur svart á hvítu að ef elítan hefur náð að setja klærnar í eitthvað verður ekki svo auðveldlega aftur snúið og það má alls ekki gerast með olíuarðinn, ef hann verður til, að lítill hópur nái að sölsa hann undir sig.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2011 02:51:31 / gumming

„Þetta er að verða sögulegur landflótti." nokkrar staðreyndir

Þessi sögulegi landflótti er svona Aflabrestsárin 1967-1970 voru brottfluttir umfram aðflutta 3176 Það er ca 1,5% íbúafjöldans á fjórum árum samtals Árin 2008 og 2009 og 2010 voru brottfluttir umfram aðflutta 4.646.en það er ca 1,5%% íbúafjöldans á þremur árum samtals. Tölurnar miðast eingöngu við fólk með íslenskt ríkisfang.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2011 17:48:09 / gumming

Gakktu í bæinn

Á eftirliti einn daginn, tók lögreglan í Kópavogi eftir allsberum Hafnfirðingi á röltinu á Reykjavíkurveginum. Þeir stoppuðu hann og spurðu hvað í ósköpunum hann væri að gera á gangi, allsber, á leiðinni til Reykjavíkur. "Það er löng saga," segir Hafnfirðingurinn þreytulega. "Við erum ekkert að flýta okkur," segja lögregluþjónarnir. "Sko, ég hitti geðveikt flotta gellu á Fjörukránni fyrir svona þremur tímum," byrjar Hafnfirðingurinn, "við byrjuðum að spjalla og ákváðum eftir nokkur glös að kíkja heim til hennar. Við byrjuðum að kela og knúsa og á endanum vorum við komin úr öllum fötunum. Þá lagðist hún á bakið og sagði: "Gakktu í bæinn!!" :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2011 17:53:10 / gumming

Eruð þið vön að biðja borðbæn heima hjá ykkur áður en þið borðið

” Eruð þið vön að biðja borðbæn heima hjá ykkur áður en þið borðið” spurði presturinn Óla litla. ”Við þurfum þess ekki. Mamma er svo flink að elda”

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2011 17:11:14 / gumming

Í dag gerði ég ekkert

Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu gjörsamlega á hvolfi í húsinu. Börnin hans 3 voru úti, ennþá í náttfötunum að leika sér í drullunni með nestisboxin tóm og umbúðapappír var stráð út um alla lóðina. Dyrnar voru opnar á bíl frúarinnar, sama sagan var með útidyrnar á húsinu .Þegar hann kom inn í forstofuna blasti við honum enn meiri óreiða.Lampi hafðu verið felldur um koll, gólfmottan var kuðluð við einn vegginn. Í næsta herbergi var teiknimynd í sjónvarpinu á hæsta styrk og leikföng af öllum stærðum og gerðum voru dreifð um allt herbergið. Í eldhúsinu flæddu diskarnir út úr vaskinum, morgunmaturinn var sullaður út um allt borð, hundamatur út um allt gólf, brotið glas var undir borðinu og smá sandhrúga var við bakdyrnar. Hann hraðaði sér upp stigann troðandi á leikföngunum og fatahrúgum í leit að konu sinni. Hann fann hana hangsandi inni í svefnherbergi ennþá í krumpuðum náttfötunum að lesa smásögu. Hún leit brosandi á hann og spurði hvernig dagurinn hefði verið. Hann leit á hana ringlaður og spurði, "Hvað skeði hér í dag?"Hún leit aftur brosandi á hann og svaraði:"Þú spyrð mig á hverjum degi þegar þú kemur úr vinnunni hvað ég hafi eiginlega verið að gera í allan dag?" "Já" segir hann tortrygginn. Hún svarar. "Jæja, í dag gerði ég ekkert!!!"

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2011 10:14:12 / gumming

Hvað vill liðið

Í Ameríku er barátta þeirra 99% við 1% sem á allt mjög skiljanleg á Norðurlöndum er þetta ekki eins augljóst og ekki endilega miðuð við að allir eigi möguleika á sómasamlegu lífi t.d. hafa Haqgsmunasamtök (sumra) heimila það ekki endilega að markmiði og kanski frekar að þeirra skjóstæðingar komist í hóp 1 % sem á allt og þar virðist engu máli skipta þó þau leggi í rúst í leiðinni líf fjölda fólks sem oft hefur önglað saman peningum á löngum tíma til að eiga til efri ára, nú er þetta orðnir peningarsjóðir sem gráðugir sækja í hvort sem það er lið sem kennir sig við frjálshyggju eða hagsmuni heimilanna. þetta eru einfaldlega fjármagn sem það vill ná í hvað sem það kostar og þá skiptir engu máli þó þetta sé fé sem fjöldi manns treystir á til framfærslu í ellinni

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2011 14:02:16 / gumming

Spennandi !!!!!!!

Ég hef verið að prófa google+ og get ekki annað sagt en að vefurinn lofar góðu slóðin er https://plus.google.com/ en það þarf tíma til að búa til circle

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2011 22:42:03 / gumming

Einn gamall og góður... ;)

Kona ein var að steikja egg handa sínum heitt elskaða eiginmanni. Allt einu ryðst bóndinn inn eldhúsið. "Varlega, varlega...! Settu meira smjör! Guðð hjálpi mér...! þú ert að steikja Of mörg egg einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA! Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR! Eggin munu festast! Varlega...VARLEGA! ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni? Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt. NOTA SALT! S A L T! Konan horfði á hann og sagði. " Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?" Eiginmaðurinn svaraði rólega, "Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum" ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2011 11:24:47 / gumming

Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga, sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa, djörfung til að mæla gegn múgsins boðun, ... manndóm til að hafa eigin skoðun."

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2011 23:23:38 / gumming

Ákveðum á grundvelli hagsmuna en ekki ofstækis

Ákvörðin im hvort við göngum í ESB eða ekki á sjálfsögðu að vera tekinn á grundvelli hagsmuna en ekki þjóðernisofstækis eða útlendinga haturs eða hræðslu, við erum full fær um alþjóðasamvinnu og eigum óhrædd að taka þátt í henni ef hún hentat okkur og þjónar okkar hagsmunum annars ekki.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2011 18:51:14 / gumming

Karlmenn eru eins og snjóstormur.

Karlmenn eru eins og snjóstormur...þú veist aldrei hvenær hann kemur, hversu margir sentimetrar það verða né heldur hve lengi hann muni endast.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2011 07:43:49 / gumming

63 prósent vill klára viðræðurnar

63 prósent þeirra sem taka afstöðu vilja að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði lokið og niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem birt er í Fréttablaðinu í dag. http://www.ruv.is/frett/meirihluti-vill-klara-vidraedurnar

» 16 hafa sagt sína skoðun

07.09.2011 22:48:04 / gumming

Fíllinn og músin

"Ja flest gerir maður nú á fylleríi" sagði fíllinn við músina þegar hún sagði honum að hún væri ófrísk

» 19 hafa sagt sína skoðun

01.09.2011 23:41:50 / gumming

Hafnfirðingar og fánastöngin

Hafnfirðingar stóðu og héldu tommustokk upp að fánastöng þegar maður kom gangandi framhjá: Hvað eruð þið að gera? spurði maðurinn. Við erum að mæla fánastöngina. Afhverju leggið þið hana ekki niður? Heyrðu bjáni , við erum að mæla hæðina en ekki lengdina!

» 17 hafa sagt sína skoðun

31.08.2011 13:16:00 / gumming

Arsenik

Kona nokkur kemur inn í apotek og biður um arsenik. “Hvað ætlaru að gera við það ?” spyr lyfsalinn. “Ég ætla að gefa manninum mínum það því hann er byrjaður að halda framhjá mér”. “Ég get ekki selt þér Arsenik til þess”, segir apotekarinn, “jafnvel þó hann sé farinn að halda fram hjá þér”. Þá dregur konan upp mynd af manninum sínum í miðjum samförum við konu apotekarans. “Ó”, segir apotekarinn “ég gerði mér ekki grein fyrir því að þú værir með lyfseðil”

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 85231
Klukkan
Textabox